Óhætt er að segja að góður andi hafi ríkt á ráðstefnunni Brjótum múra! sem fram fór á Akranesi 4. og 5. nóvember. Aðsókn var góð, vel á annað hundrað manns báða dagana, og sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu góð þátttaka var meðal innflytjenda sem tóku virkan þátt sem framsögumenn, þátttakendur í panel og almennir gestir.
Markmiðið með ráðstefnunni var að stuðla að opinni og einlægri samræðu um fjölmenningarsamfélagið og málefni innflytjenda, Það tókst með eindæmum vel. Líflegar umræður spunnust í sal og margir höfðu á orði hversu gagnlegt það væri að heyra reynslusögur þeirra sem þekkja það af eigin raun að vera innflytjendi í íslensku samfélagi.
Þá var góður rómur gerður að þeim erindum sem flutt voru á ráðstefnunni. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, setti ráðstefnuna föstudaginn 4. nóvember. Í kjölfarið steig í pontu Aleksandra Chilipala sem opnaði augu ráðstefnugesta fyrir því að sálrænt álag sem fylgir því að flytja á milli menningarheima getur verið gríðarlegt og að mikilvægt sé að vinna með það. Íris Björg Kristjánsdóttir, formaður Innflytjendaráðs, gerði grein fyrir hlutverki stjórnvalda og sagði frá þeirri stefnumótun og vinnu sem Velferðarráðuneytið hefur unnið í málaflokknum. Þorvaldur Friðriksson talaði um mikilvægi þess að skrá sögu innflytjenda sem flytja til Íslands, einsog gert var í árdaga byggðar á Íslandi. Þannig mætti auka skilning og virðingu manna á milli. Eiríkur Bergmann stiklaði á stóru um sögu fólksflutninga og fjölmenningar í Evrópu með sérstaka áherslu á pólitísk viðbrögð við þeirri þróun.
> Sjá myndir frá ráðstefnunni





